Skarsnig´s Palace

Misskilin snillingur, það er ekki ég sem er skrítin, það er heimurinn. Og ef þið gerið grín af stafsetningu hérna á síðunni fariði á bannlista :Þ

Tuesday, March 21, 2006

Lega vinarins

Alltaf þegar spurt er hvernig liggur hann á þér þá er það alltaf til vinstri, ég er rétthentur og alltaf er hann til vinstri, hérna þið sem eruð örfhent liggur hann til hægri á ykkur? :)

Bílasýning

Ég, Toby, Fannar, Hildur og snædís kíktum á bílasýningu á föstudag, helvede flott, tók okkur 5 tíma að labba í gegn. Á þessari slóð eru nokkrar myndir sem ég tók á sýningunni. Fleiri myndir koma þarna inn á næstunni :).

http://spaces.msn.com/skarsnig/

Bílasýning

Ég, Toby, Fannar, Hildur og snædís kíktum á bílasýningu á föstudag, helvede flott, tók okkur 5 tíma að labba í gegn. Á þessari slóð eru nokkrar myndir sem ég tók á sýningunni. Fleiri myndir koma þarna inn á næstunni :).

http://spaces.msn.com/skarsnig/

Tuesday, March 14, 2006

Bloggiblogg

Fólk eitthvað að rífa sig yfir leti hjá mér að blogga og fyrir ykkur :Þ. Voða lítið að gerast hjá mér fyrir utan skóla. Að vísu tók Toby kallinn upp á því að yfirgefa mig í næstum viku sniff sniff, en góða við það er að ég er búinn að sofa rosalega vel eftir að hann skrapp í burtu ;), við nebbla hrjótum eins og ég veit ekki hvað hérna úti, betra þegar ég er sá eini sem hrýt. Hann ætlar líka að koma með áfyllginu á efni sem hægt er að horfa á, sölver búinn að vera duglegur að ná í Lois and Clark fyrir okkur, snilldar þættir. Annars eru bara 24 dagar þangað til maría kemur út að leika við mig :). Ætlum að skreppa til Þýskalands og skoða okkur um. Ég og Fannar kallinn ætlum að kíkja á bílasýningu hérna í Köben á fimtudag, hlakka til þess, kannski maður taki nokkrar myndir og pósti hérna. Hundurinn hans hann Skuggi er alltaf jafn geðveikur þegar ég sé hann, tekur örugglega nokkra klukkutíma að róa hann niður eftir að ég fer frá þeim. Það er skítakuldi hérna úti, á að vera -7 gráður á fimmtudag, allt Toby að kenna hann er að koma heim á miðvikudag, hann fór með snjóinn heim til íslands og á meðan er voða fínt veður hérna og svo kemur hann með þetta til baka :( . Og fyrir ykkur sem ekki vissuð þá geta svín fengið sólbrúnku. Takktakk og blessbless

Thursday, March 02, 2006

Glösin vondu

Langaði að deila með ykkur smá reynslu sem ég lenti í á leiðinni úr skólanum. Var að bíða eftir strætó fyrir utan skólan og þar kemur þetta kínverska par labbandi að skílinu, þau voru í þvílíkum rifrildum, rosalega alvarlegt. Ég fór allt í einu að hugsa um brandara úr Coupling þar sem mesti snillingurinn í þáttunum Jeff kynnti til sögunar glasavandræðin. Virkar soleis að eitthvað er um að vera sem á að vara rosalega alvarlegt og þú ferð að hugsa hvað það versta sem þú getur gert er, og glösin fara að staflast upp og þú ferð að halda niður í þér hlátrinum, glösin staflast upp og það verður erfiðara og erfiðara að halda í sér, þetta gerðist einmitt þarna akkurat á þessari stundi, sem betur fer náði ég að halda í mér og láta þetta líta út sem ég var að hósta og dró mig í hlé til hliðar við skílið. Hjúkk, þið sem eruð ekki búinn að sjá breska Coupling þá er það skilda að horfa á það og sem allra fyrst. :)