Skarsnig´s Palace

Misskilin snillingur, það er ekki ég sem er skrítin, það er heimurinn. Og ef þið gerið grín af stafsetningu hérna á síðunni fariði á bannlista :Þ

Wednesday, November 30, 2005

Blog 2

Ekki mikið um að vera hérna í Denmark, fer að nálgast að maður komist heim :) allger snilld, farin að hlakka mikið til að sjá alla á íslandi. Garðar kallinn ætlar að renna og ná í okkur út á flugvöll, vonandi verður Audinn komin á lappir þá annars fáum við Opel kraftvagninn. Aðeins farið að kólna hérna komið undir frostmark :Þ. Ég og toby erum að vinna í Linux og Network security verkefnum, aukalega erum við Pawel að vinna í rafmagnsverkefnunum, fengum nýan hópfélaga hann Jörgen, allt gengur sæmilega þar, er að koma þeim inn í klámhugsunina (urðu steinhissa að það væri hægt að nálgast efni um bólfimi á netinu, vona bara að þeir bræði ekki úr netinu með downloadi) , eru soldið lokaður en eg næ að brjóta þá hægt og rólega. Pawel er farin að sýna góðar framfarir. Annars náðum við að koma því soleis fyrir að við þurfum ekki að taka pófin í jan svo við getum verið heima fram til 28.jan sirka :) mikil gleði (Toby grét, ég missti eitt tár). Búinn að kaupa allar jólagjafir svo þetta verður leti og þægindi þegar ég kem heim ;) held þetta sé í fyrsta skipti sem ég hef náð því. Smá útidúr: það er ótrúlegt, seinustu jól þegar ég var að vinna 24.des þá var rosalegt hvað kom mikið af drukknu fólki inn í búðina, og svo 5 mín fyrir lokun komu allir pabbarnir sem voru svona pínku á eftir áætlun að kaupa vinsælustu leikina :( ótrúlegt. Annars fara jólin á stað hérna svipað og heima, alltof snemma skreitt og byrjað að spila jólalög 1.nóv. Æ já.. áður en ég hætti, einhver skipað mér að seigja frá hversu góður maturinn var á Reff and Beef, hann var merry merry good og rann vel niður með 2005 árgerð af Coka Cola.
Jæja, ég ætla að skella mér í háttinn og dreyma dóna drauma. Yfir og út, fram og tilbaka, upp og niður. Takk fyrir.

It is often said that before you die your life passes before your eyes. It is in fact true. It's called living. (Terry Pratchett)

Monday, November 21, 2005

Bensín

Fann hérna helvede góða lýsingu á bensínsölu íslands (og fyrir ykkur sem ekkert slæmt má seigja um ísland, einhver önnur lönd líka ;) ).

Thursday, November 17, 2005

Konugsfjölskyldan

Fór i mat til konungsfjölskyldunnar, orðin næstum daglegur gestur, fengum okkur svo smá Cognac út á svölum, einhverjir útlendingar voru niðri svo auðvitað var veifað.





Skógarferð

Við toby fórum í lautarferð í gær og ég bara varð að taka mynd af honum, hann var svo One With the Nature, sagði honum að fara ekki svona út úr húsi en hann vildi endilega fara svona. Allir horfðu á okkur, leið geðveikt illa, hvað finnst ykkur? mynduði fara með honum í lautarferð?


Tuesday, November 15, 2005

Jól

Ekki eru jólin eins ánægjuleg fyrir alla :(

Sirka það sem hefur gerst í danaveldi í pörtum

Jæja, ætla svona aðeins að fræða ykkur um það sem hefur gerst hérna í danaveldi. Fyrsta lagi vil ég minnast á að ég hef lent 3svar í árekstri með SVR síðan ég kom, held að þessir strætóbílstjórara hérna eru æfðir í að vera lélegir ökumenn ( eða kannski rónarnir teknir inn og látnir fá nýan fallegan gulan bíl), geta ekki keirt frá einunm stað til annars án þess að rikkja bílnum til, gefa í, klossbremsa og svo gefa þeir í þegar þeir sjá að einhver er aðeins of seinn og kemur hlaupandi :( , mátt líka ekki fara út að framan. Jam SVR Denmark sucks. Lestirnar eru ágætar nema það að einhver skipuleggur þær soleis að þær eru alltaf akkurat farnar þegar ég og toby komum að brautarpallinum, þarf að eiga orð við þann sem stjórnar því. Allt það sem toby segir um eldamennsku mína er allgjör helbert lýgi, er geggjaður kokkur, og allt sem ég geri bragðast himneskt og hann skal sko fara að passa sig annars hætti ég að elda og hann verður að engu :) hehe ég er með meira til að endast en hann ef þið vitið hvað ég meina (annars hafi þið ekki séð okkur í speedo) , en annars skiptum við þessu nokkuð bróðurlega á milli okkar. Skólinn er mjög finn, geðveikur bar í skólanum, 2 bjórar og 4 staup kosta um 500 kr íslenskar (íslenskar...íslenskar....íslenskar ekki danskar toby :Þ) , ja það má samt kannski mínusa tónlistina á barnum...er ekki mjög góð, ég,toby, pawel ( pólskur vinur okkar hérna) og allir skiptinemar sem við höfum talað við eru allveg sammála að danir eru með ömulegasta tónlistasmekk (ef tónlistasmekk á að kalla ;), ) hlusta bara á FM957, KISS eitthvað þarna sem er á íslandi og magadanstónlist ;) eða eitthvað soleis. Tívólíð er fínt, ég og vinur fannars keiptum okkur dagspassa og fórum meðal annars sirka 10 sinnum í rússíbanan og 5 sinnum í nálina, sást ekkert á okkur, stórir og sterkir (gúndi kannski ekkert rosalega stór en samt hann rífur það upp með góðri orku). María kom svo í heimsókn (2svar sinnum ;);););) ), allveg yndislegt, tókum vel á því á öllum vígstöðum, fórum í búðir og soleis, var ekki orðin allveg geðveikur því hún maría mín er nokkuð fín með búðirnar, oftast fljót inn og út( samt ekki það sem þið hugsið %&/$# perrar :) ). Ég og maría lentum í skemmtilegri reynslu í bíó, þegar myndin var rétt byrjuð var slökkt á myndinni og sýningargaurinn kom inn og sagði öllum að halda KJ eða hann myndi slökkva á myndinni og við gætum komið okkur heim :) ekki lýgi, allger snilld. Einhver stór kella lennti við hliðina á maríu og var að þíða allt fyrir hana, var nokkuð spes( held að maría hafi verið hrædd við að hún borðaði hana, þvílík stórt stóra poppið hérna í danmörku, ég og garðar gærum örugglega ekki borðað einn sekk. en jæja, ælta heim úr skólanum.. nenni ekki að vera hérna lengur, skrifa meira seinna. vonandi er þetta nóg fyrir ykkur í bili.

Thursday, November 10, 2005

Dvergarnir fljúga

í dag hitt ég dverg í strætó, var ekki mjög hár í vexti, svona eins og bjórborð, eitthvað sniðugt samt við hann svo ég klappaði honum á kollinn og togaði í eyrun. Ekkert rosalega ánægður með það, kallaði mig eihverju skrítnum dönskum orðum, talaði soldið hratt svo ég skildi hann ekki. En ég fór út á næstu stoppustöð hann gaf mér litla puttann í bakglugganum þegar strætó rendi út af stoppustöðinni. Skemmtilegir þessir dvergar, sérstaklega á þríhjólum. Þegar ég verð stór ætla ég að kaupa einn soleis. Be a proud dwarf owner. :)