Skarsnig´s Palace

Misskilin snillingur, það er ekki ég sem er skrítin, það er heimurinn. Og ef þið gerið grín af stafsetningu hérna á síðunni fariði á bannlista :Þ

Wednesday, November 30, 2005

Blog 2

Ekki mikið um að vera hérna í Denmark, fer að nálgast að maður komist heim :) allger snilld, farin að hlakka mikið til að sjá alla á íslandi. Garðar kallinn ætlar að renna og ná í okkur út á flugvöll, vonandi verður Audinn komin á lappir þá annars fáum við Opel kraftvagninn. Aðeins farið að kólna hérna komið undir frostmark :Þ. Ég og toby erum að vinna í Linux og Network security verkefnum, aukalega erum við Pawel að vinna í rafmagnsverkefnunum, fengum nýan hópfélaga hann Jörgen, allt gengur sæmilega þar, er að koma þeim inn í klámhugsunina (urðu steinhissa að það væri hægt að nálgast efni um bólfimi á netinu, vona bara að þeir bræði ekki úr netinu með downloadi) , eru soldið lokaður en eg næ að brjóta þá hægt og rólega. Pawel er farin að sýna góðar framfarir. Annars náðum við að koma því soleis fyrir að við þurfum ekki að taka pófin í jan svo við getum verið heima fram til 28.jan sirka :) mikil gleði (Toby grét, ég missti eitt tár). Búinn að kaupa allar jólagjafir svo þetta verður leti og þægindi þegar ég kem heim ;) held þetta sé í fyrsta skipti sem ég hef náð því. Smá útidúr: það er ótrúlegt, seinustu jól þegar ég var að vinna 24.des þá var rosalegt hvað kom mikið af drukknu fólki inn í búðina, og svo 5 mín fyrir lokun komu allir pabbarnir sem voru svona pínku á eftir áætlun að kaupa vinsælustu leikina :( ótrúlegt. Annars fara jólin á stað hérna svipað og heima, alltof snemma skreitt og byrjað að spila jólalög 1.nóv. Æ já.. áður en ég hætti, einhver skipað mér að seigja frá hversu góður maturinn var á Reff and Beef, hann var merry merry good og rann vel niður með 2005 árgerð af Coka Cola.
Jæja, ég ætla að skella mér í háttinn og dreyma dóna drauma. Yfir og út, fram og tilbaka, upp og niður. Takk fyrir.

It is often said that before you die your life passes before your eyes. It is in fact true. It's called living. (Terry Pratchett)

0 Comments:

Post a Comment

<< Home