Skarsnig´s Palace

Misskilin snillingur, það er ekki ég sem er skrítin, það er heimurinn. Og ef þið gerið grín af stafsetningu hérna á síðunni fariði á bannlista :Þ

Thursday, March 02, 2006

Glösin vondu

Langaði að deila með ykkur smá reynslu sem ég lenti í á leiðinni úr skólanum. Var að bíða eftir strætó fyrir utan skólan og þar kemur þetta kínverska par labbandi að skílinu, þau voru í þvílíkum rifrildum, rosalega alvarlegt. Ég fór allt í einu að hugsa um brandara úr Coupling þar sem mesti snillingurinn í þáttunum Jeff kynnti til sögunar glasavandræðin. Virkar soleis að eitthvað er um að vera sem á að vara rosalega alvarlegt og þú ferð að hugsa hvað það versta sem þú getur gert er, og glösin fara að staflast upp og þú ferð að halda niður í þér hlátrinum, glösin staflast upp og það verður erfiðara og erfiðara að halda í sér, þetta gerðist einmitt þarna akkurat á þessari stundi, sem betur fer náði ég að halda í mér og láta þetta líta út sem ég var að hósta og dró mig í hlé til hliðar við skílið. Hjúkk, þið sem eruð ekki búinn að sjá breska Coupling þá er það skilda að horfa á það og sem allra fyrst. :)

3 Comments:

  • At 11:37 AM, Anonymous Anonymous said…

    Vá man svo innilega eftir þessu atriði úr þættinum :D ég er alltaf að lenda í þessu versta er að ég næ yfirleitt ekki að halda hlátrinum niðri :( hefðir bara átt að hlæja að þessum vitleysingum þá hefðu þau kannski hætt að rífast :Þ

    Kveðja frá fróninu sem er sjúklega kalt á þrátt fyrir sól sem stingur í augun!
    Bebe :*

     
  • At 2:20 PM, Anonymous Anonymous said…

    Það gegnur nú ekki vel hjá þér að blogga frændi hvernig væri nú að fá smá sögur af þér.

     
  • At 11:48 AM, Blogger Skarsnig said…

    jahh það er bara það lítið að gerast hjá mér, bara skóli skóli skóli og það er ekki spennandi :Þ

     

Post a Comment

<< Home