Bloggiblogg
Fólk eitthvað að rífa sig yfir leti hjá mér að blogga og fyrir ykkur :Þ. Voða lítið að gerast hjá mér fyrir utan skóla. Að vísu tók Toby kallinn upp á því að yfirgefa mig í næstum viku sniff sniff, en góða við það er að ég er búinn að sofa rosalega vel eftir að hann skrapp í burtu ;), við nebbla hrjótum eins og ég veit ekki hvað hérna úti, betra þegar ég er sá eini sem hrýt. Hann ætlar líka að koma með áfyllginu á efni sem hægt er að horfa á, sölver búinn að vera duglegur að ná í Lois and Clark fyrir okkur, snilldar þættir. Annars eru bara 24 dagar þangað til maría kemur út að leika við mig :). Ætlum að skreppa til Þýskalands og skoða okkur um. Ég og Fannar kallinn ætlum að kíkja á bílasýningu hérna í Köben á fimtudag, hlakka til þess, kannski maður taki nokkrar myndir og pósti hérna. Hundurinn hans hann Skuggi er alltaf jafn geðveikur þegar ég sé hann, tekur örugglega nokkra klukkutíma að róa hann niður eftir að ég fer frá þeim. Það er skítakuldi hérna úti, á að vera -7 gráður á fimmtudag, allt Toby að kenna hann er að koma heim á miðvikudag, hann fór með snjóinn heim til íslands og á meðan er voða fínt veður hérna og svo kemur hann með þetta til baka :( . Og fyrir ykkur sem ekki vissuð þá geta svín fengið sólbrúnku. Takktakk og blessbless

2 Comments:
At 10:25 PM,
Anonymous said…
Þú ert alltaf jafn yndislegur, elsku dúllan mín. Og gaman að sjá að þú hefur gaman þarna úti. Reyndu nú að læra einhvað, ef það er möguleiki á annrs er nú ekki mikið sem hægt er að troða inn í þessa karlmanns hausa. Heyrumst seinna Kveðja Marý
At 7:39 PM,
Skarsnig said…
ja, ég get allvega gert tvennt í einu ;) hehe, og já ég reyni að troða einhverju þarna inn, verst hvað það er mikið bleikt og blátt þarna fyrir, slæmt að þurfa að henda soleis út fyrir námsefni.
Post a Comment
<< Home