Páskarnir
Nú er María farin aftur frá mér og skólin tekin við, þetta er að vísu smá eftir á bloggið því hún fór 18.apríl en ég er bara svona latur að blogga. Við áttum nokkra fína leti daga hérna í köben áður en við fórum til Hamburg, fórum og sáum Ice age 2 sem er allger snilld, toby stakk bara af til Sweden til kæ..... vinar síns, gaf okkur næði til að gera það sem okkur langaði til að gera án þess að hann væri að trufla og taka myndir. Fórum svo til Hamburg á þriðjudegi með lest, þegar komið var á leiðarenda var ákveðið að fara reyna að finna Hótelið sem átti að vera rosalega létt eftir kortinu sem fylgdi með á netinu en þegar við vorum komin að stjörnunni á kortinu þá sáum við ekkert Hótel, náðum tali á servicehjálparmanni og hann fann út að hótelið væri út í rassgati og við þyrftum að taka lestina þangað, kom svo í ljós að það tók samt bara einhverjar 5 mín að taka lestina út í rassgat. Hótelið var rosalega fínt fyrir utan að allt var á þýsku í sjónvarpinu og eina sem maður þarf ekki að skilja mikið í þýsku til að horfa á þá þurfti maður að borga :( (ja ja snell snell, gr). Fórum í skoðunarferð með rútu í gegnum bæinn, ætluðum að fara i Hamburg deungeon en þar var allt á þýsku, 1,5 klukkustunda leikrit á þýsku..því auðvitað tala allir túristar þýsku ;). En fundum helvede cool stað þarna við hliðina á Hamburg dungeon, Minature land þar sem var svona litlar lestir,bílar og soleis... vel útskýrt hjá þér þór fannar minn.... ehh búið að búa til lítil version af hinum og þessum borgarhlutum (getið séð þetta á myndasíðunum þegar ég verð búinn að láta þær inn :) ). Annars var ferðin bara vel heppnuð, María fékk að versla smá og eins og allir karlmenn vita þá er það skemmtilegasta sem þær gera :). Fórum svo til baka til Köben á fimtudags kveldi og fórum þá í íbúð Fannars og Hildar sem voru svo góð að lána okkur meðan þau voru á Íslandi. Hitt og þetta var gert í köben mikið labbað um og skoðað, hef ekki séð svona mikið af köben síðan ég kom hingað, en það var gaman :). Fór svo með Maríu á flugvöllin og hófst svo skólinn og leiðindin. Jæja nenni ekki að skrifa meira.

0 Comments:
Post a Comment
<< Home